25.3.2009 | 23:11
magic loop
þó svo að ég sé búin að vera prjóna í langann tíma þá getur maður alltaf lært eitthvað nýtt. fyrir nokkur síðan lærði ég nýja aðferð sem kallast magic lopp. en sú aðferð gengur út á að nota langann hringprjón í stað þess að nota sokkaprjóna. er auðveldara en það hljómar og mjög skemmtilegt. svo lærði ég að prjóna tvo hluti á sama prjóninum. það auðveldar manni heilmikið og hlutirnir verða alveg eins. en í þetta skiptið var ég ekki alveg nógu sátt því ermarnar mínar voru of víðar og því varð ég að rekja þær báðar upp . heldur leiðinlegt en ég búin að prjóna þær báðar aftur. ég er komin í munstrið og því er ekki mikið eftir. en þá þarf ég að gera aðra nákvæmlega eins. en ég held að ég geri eitthvað í millitíðini. set mynd að peysunni um leið og hún er tilbúin.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.