langt er liðið

þetta blogg átti nú ekki að fara í dvala. En það hefur verið mikið að gera síðan síðast. Núna er allt á fullu í jólaprjóni og get ég ekki sýnt ykkur neina myndir. en ég skal setja inn myndir frá því í sumar. Síðan er allt fullt af prjónakvöldum sem eru alltaf jafn skemmitleg. Mömmuhópurinn minn hittist einu sinni í mánuði í heimahúsi og förum alltaf saman í prjónakaffi á Amokka fyrsta fimmtudaginn í mánuði og svo er komið prjónakaffi í mosó. þannig það er alltaf hægt að komast út og hitta góðar konur og prjóna smá. 


Loksins gékk allt upp

Jæja lopapeysan er búin. það er mín peysa, á eftir að gera aðra eins fyrir manninn minn. við verðum ein af þessum korny pörum í samstæðum peysum í sumar. þannig að ef þú sérð þannig par í sumar þá gæti það verið ég. en áður en ég fer í aðra peysu er ég að skella í verkefni sem er ætlað í fermingargjöf. svo langaði mig að sýna ykkur prjónamerkin sem ég hef verið að gera undanfarið. p4016193p4016198p4016200

magic loop

þó svo að ég sé búin að vera prjóna í langann tíma þá getur maður alltaf lært eitthvað nýtt. fyrir nokkur síðan lærði ég nýja aðferð sem kallast magic lopp. en sú aðferð gengur út á að nota langann hringprjón í stað þess að nota sokkaprjóna. er auðveldara en það hljómar og mjög skemmtilegt. svo lærði ég að prjóna tvo hluti á sama prjóninum. það auðveldar manni heilmikið og hlutirnir verða alveg eins. en í þetta skiptið var ég ekki alveg nógu sátt því ermarnar mínar voru of víðar og því varð ég að rekja þær báðar upp Wink. heldur leiðinlegt en ég búin að prjóna þær báðar aftur. ég er komin í munstrið og því er ekki mikið eftir. en þá þarf ég að gera aðra nákvæmlega eins. en ég held að ég geri eitthvað í millitíðini. set mynd að peysunni um leið og hún er tilbúin.


handavinnufíkill

mig langar að deila með ykkur áhuga mínum á prjónaskap. Það er eitt af því sem heillar mig svakalega mikið. Að prjóna er mér lífsnauðsynlegt. Ég vona að það séu fleiri þarna úti sem eru eins og ég. Í augnablikinu er ég að gera lopapeysur á fjölskylduna. Gamaldags hefðbundnar peysur á mig og manninn og strákurinn fær heilgalla. Aldeilis verðum við flott í útileigunum í sumar. Set inn myndir þegar ég klára. Annars langar mig að benda ykkur á ravelry.com það er mesta snilld prjónakonunar sem ég hef komist í. Þarna má finna fjölda uppskrifta og annað skemmtilegt.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband